Bæjarráð Hveragerðis samþykkti í dag ályktun þar sem segir að Hvergerðingar og aðrir fylgjendur skilyrðislausrar verndunar Bitru, Reykjadals og Grænsdals fagni tillögu til þingsályktunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða sem geri ráð fyrir verndun á umræddu svæði.
„Með því er sérstaða dalanna og svæðisins hér ofan byggðar í Hveragerði viðurkennd en fyrir þessu höfum við barist allt frá því fyrsta hugmynd um Bitruvirkjun kom fram. Órofa samstaða Hvergerðinga hefur án vafa átt stóran þátt í þessari niðurstöðu en við hlið okkar hafa staðið öll samtök sem láta sig náttúruvernd einhverju skipta á landinu. Slík samstaða er dýrmæt og fyrir það viljum við þakka," segir m.a. í ályktun bæjarráðsins, sem var samþykkt samhljóða.
Bæjarráðið segir að þótt þetta svæði sé verndað séu nægir virkjunarkostir í nágrenninu sem enginn ágreiningur sé um og þar séu efst á blaði Hverahlíð, Gráuhnjúkar og Meitill.
„Nú er brýnt að orkuöflunarfyrirtæki horfi til þeirra staða þar sem samstaða er um að virkja en haldi ekki áfram að berjast við vindmyllur í vonlausri baráttu um virkjanir á stöðum sem mikill meirihluti þjóðarinnar vill vernda," segir í ályktuninni.