Þingfundir hefjast á Alþingi á morgun og verður þá fjallað um ýmis frumvörp sem hafa verið í vinnslu í þingnefndum í sumar.
Í upphafi fundarins, klukkan 10.30, mun Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra flytja munnlega skýrslu um stöðuna í efnahags- og atvinnumálum. Verða síðan umræður um skýrsluna.