Starfsmenn utanríkisráðuneytisins við Rauðarárstíg vinna markvisst að því að hvetja bændur og aðra sem starfa að landbúnaði til að sækja um aðlögunarstyrki frá ESB til að styrkja stjórnsýslu sína, undirbúa innleiðingu ESB-gerða og laga sig að kröfum ESB í aðildarviðræðunum. Þetta kemur fram á Evrópuvaktinni.
„Til þessa eru veittir svonefndir IPA-styrkir. Í áskorunarbréfi utanríkisráðuneytisins eru móttakendur þess hvattir til að sækja um styrk fyrir 16. september.
ESB veitir tvenns konar styrki til umsóknarríkis, annars vegar til að kalla til sérfræðinga og taka þátt í uppfræðslustarfi, hins vegar til að laga sig að kröfum ESB á aðlögunar- og viðræðuferlinu, svonefnda IPA-styrki.
Ráðherrar vinstri-grænna hafa sagt að ekki hefjist nein aðlögun í ráðuneytum undir þeirra stjórn fyrr en samið hafi verið við ESB. Þá verði ekki sótt um IPA-aðlögunarstyrki úr ráðuneytum þeirra. Við svo búið ákvað utanríkisráðuneytið að það mundi sjá um styrkumsóknir og er bréfið sem hér er sagt frá til marks um að ráðuneytið fer sínu fram þrátt fyrir afstöðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra," segir í frétt Evrópuvaktarinnar.