Annríki verður hjá sýslumönnum á höfuðborgarsvæðinu og á Austurlandi í næstu viku en þá verða alls boðnar upp eitt hundrað fasteignir. Má þar nefna að boðnar verða upp átta íbúðir við Ögurhvarf í Kópavogi en Kópavogsbær er þar gerðarbeiðandi.
Flestar eignanna, eða 41, eru í Kópavogsbæ og fara uppboðin fram fimmtudaginn 8. september næstkomandi.
Þá verða 19 eignir boðnar upp í Hafnarfirði þriðjudaginn 6. september og átta eignir í Fjarðabyggð miðvikudaginn 7. september.
Loks verða 32 eignir boðnar upp í Reykjavík næsta miðvikudag og fimmtudag.