Óska eftir viðræðum við Huang

Grímsstaðir á Fjöllum.
Grímsstaðir á Fjöllum.

Verkalýðsfélagið Framsýn á Húsavík samþykkti á fundi í kvöld að óska eftir viðræðum við Huang Nubo sem áformar að byggja heilsárshótel á Grímsstöðum á Fjöllum. Í ályktun fundarins eru stjórnvöld hvött til að vinna þétt og styðjandi við þá aðila sem vinna að því að styrkja og bæta atvinnu- og mannlíf í Þingeyjarsýslum.

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, sagði að skiptar skoðanir hefðu verið á fundinum um kaup Huangs á Grímsstöðum. „Við vorum sammála um að senda bréf til Kínverjanna og óska eftir kynningarfundi um það sem þeir eru að hugsa. Við viljum fá að fylgjast með því að ef af þessu verður kemur okkar fólk til með að starfa þarna,“ sagði Aðalsteinn sem telur að það geti verið jákvætt að fá þessa fjárfestingu inn í héraðið.

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundinum um atvinnumál:

„Í Þingeyjarsýslum er geysifögur náttúra, gott framtakssamt fólk og gnægð annarra auðlinda. Mikil undirbúningsvinna í atvinnumálum hefur staðið yfir á svæðinu á vettvangi heimamanna, stjórnvalda,  sveitarfélaga og fyrirtækja sem nú virðist ætla að skila tilætluðum árangri. 

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar – stéttarfélags fagnar jákvæðum fréttum um áhuga framtakssamra aðila á að auka umsvif á svæðinu og nýta til þess umhverfi, hugvit og auðlindir svæðisins í sátt við umhverfið.

Mikill kraftur er nú í undirbúningi að uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Bakka við Húsavík. Bæði stór og meðalstór fyrirtæki hafa sýnt því áhuga að setja niður atvinnustarfsemi á Bakka. Samfara þessu er nú unnið að vegagerð á Reykjaheiði og borunum á Þeistareykjum sem vonandi leiða til þess að framkvæmdir við byggingu orkumannvirkja hefjist á Þeistareykjum og í Bjarnarflagi sem fyrst.

Jafnframt  eru uppi áform um stórfellda uppbyggingu ferðaþjónustu, s.s. á Grímsstöðum á Fjöllum, auk þess sem flugfélagið Ernir mun hefja áætlunarflug til Húsavíkur næsta vor sem eru mikil gleðitíðindi, ekki síst fyrir ferðaþjónustuna. Þá er unnið að frekari endurbótum á samgöngukerfinu í Þingeyjarsýslum s.s. með Vaðlaheiðargöngum. Samhliða þessu virðast gróin fyrirtæki í sjávarútvegi og landbúnaði halda sínu, sem eru grunnstoðir atvinnulífsins í héraðinu.

Framsýn – stéttarfélag hvetur stjórnvöld og aðra til að vinna þétt og styðjandi við þá aðila sem vinna að því að styrkja og bæta atvinnu- og mannlíf í Þingeyjarsýslum. Verði rétt haldið á málum verða Þingeyjarsýslur á komandi árum eitt heitasta svæðið til atvinnuuppbyggingar á Íslandi sbr. áhuga fjárfesta á að setja niður öfluga atvinnustarfsemi í Þingeyjarsýslum.“

Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar.
Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert