Ólöf Nordal, Bjarni Benediktsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd, auk Einars K. Guðfinnssonar og Jóns Gunnarssonar, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í sjávar- og landbúnaðarnefnd, óska eftir að nefndirnar verði kallaðar á sameiginlegan fund við allra fyrsta hentugleika.
Tilefni fundarins er bréf frá Jan Tombinski, fastafulltrúa Póllands hjá Evrópusambandinu, þar sem fram kemur að Ísland sé ekki tilbúið til samninga um landbúnaðarmál í aðildarviðræðunum. Er þetta bréf sent samhliða því að lögð var fram rýniskýrsla sambandsins um landbúnaðarmál, samkvæmt tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.
Í dag bárust svo viðbrögð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins við þessu bréfi.
Telja þingmennirnir nauðsynlegt að fara rækilega yfir stöðu aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið í ljósi þessa.
Óskað er eftir því að Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra komi til fundarins og skýri stöðu þessa máls, samkvæmt fréttatilkynningu.