Geta ekki lengur vikið sér undan

Bændasamtökin krefjast þess að settar verði fram skýrar lágmarkskröfur í …
Bændasamtökin krefjast þess að settar verði fram skýrar lágmarkskröfur í viðræðunum við ESB um landbúnað. mbl.is

Bændasamtök Íslands telja að íslensk stjórnvöld geti ekki lengur vikið sér undan því að setja fram skýr samningsmarkmið í samningsviðræðunum við Evrópusambandið um landbúnaðarmál. Þetta kemur fram í frétt frá BÍ vegna rýniskýrslu ESB.

Í fréttatilkynningu frá forystu Bændasamtakanna segir að ESB hafi nú tilkynnt íslenskum stjórnvöldum að Ísland sé ekki nægilega búið undir samninga um landbúnaðarmál í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

„Í bréfi ESB frá 1. september 2011 segir efnislega að Evrópusambandið telji að ekki sé hægt að taka upp samningaviðræður á þessu sviði fyrr en íslensk stjórnvöld uppfylli ákveðin skilyrði. Farið er fram á að lögð sé fram tímasett vinnuáætlun sem kveði á um hvernig Ísland hyggist verða að fullu reiðubúið til þess að njóta þess ávinnings og axla þær skyldur sem af aðildarsamningi leiða á fyrsta degi aðildar. Vinnuáætlunin skuli lýsa nánar hvernig Ísland muni undirbúa sig fyrir innleiðingu löggjafar, koma á fót stofnunum og öðrum kerfum sem samrýmast löggjöf Evrópusambandsins,“ segir í fréttatilkynningunni.

Er það mat BÍ að nú hafi glögglega komið í ljós að ESB krefjist þess að Ísland aðlagi lagasetningu, stjórnkerfi og upplýsingakerfi sín þannig að þau uppfylli kröfur ESB á sama tíma og verið sé að vinna að aðildarsamningi. ESB muni krefjast fullvissu þess að Ísland hafi stjórnsýslulega getu til að hrinda landbúnaðarstefnu ESB í framkvæmd og sýni það í verki. Þetta hafi embættismenn ESB einnig sagt fulltrúum BÍ með skýrum hætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert