Ítalski utanríkisráðherrann, Franco Frattini, lýsti fullum stuðningi við aðildarumsókn Íslendinga að Evrópusambandinu á fundi sem hann átti í morgun með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra.
„Frattini hvatti Íslendinga til að knýja á dyr Ítala ef flækjur kæmu upp í samningunum, og kvaðst hafa mikinn skilning á mikilvægi fiskveiða í efnahagslífi Íslendinga,“ segir í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins.
„Ráðherrarnir fóru yfir stöðuna í aðildarviðræðum Íslendinga við Evrópusambandið, og Frattini lýsti eindregnum vilja Ítala til að viðræðurnar gengju sem greiðast. Hann árréttaði sérstaklega hversu langt Íslendingar væru nú þegar komnir í samstarfi við Evrópuríki gegnum EES samninginn.
Frattini ræddi stöðu mála á evrusvæðinu og aðgerðir sem gripið hefur verið til meðal annars á Ítalíu þar sem ríkisstjórnin tók í morgun ákvörðun um aðgerðir til að ná niður fjárlagahalla á næstu tveimur árum. Kvaðst hann þess fullviss að evran kæmi sterkari út úr þeim aðgerðum sem nú er verið að grípa til á evrusvæðinu.
Ráðherrarnir ræddu ástandið í Líbíu að loknum sigri uppreisnarmanna og voru sammála um mikilvægi þess að alþjóðasamfélagið tæki virkan þátt í að tryggja framgang lýðræðis í landinu og styddi við efnahagslega uppbyggingu.
Málefni norðurslóða voru rædd sérstaklega og hrósaði Frattini frumkvæði Íslendinga á því sviði. Hann þakkaði sérstaklega eindreginn stuðning Íslands við áheyrnaraðild Ítala að norðurskautsráðinu. Frattini utanríkisráðherra hefur ítrekað lýst miklum áhuga á norðurslóðum út frá vísindastarfi Ítala á heimskautasvæðunum.
Ítalir hafa boðið Íslendingum til samstarfs um rannsóknir á eldfjöllum og eldfjallaösku í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli, en Ítalía og Ísland eru einu lönd Evrópu þar sem virk eldjföll láta reglulega að sér kveða. Ræddu ráðherrarnir tillögur um að dýpka þetta samstarf, meðal annars með hugsanlegri aðkomu Evrópusambandsins.“