Varaforseti kínverska ráðgjafaþingsins, Wang Gang, kom hingað til lands í dag og mun dvelja hér í tvo daga ásamt sendinefnd. Wang Gang er hér á landi í boði forseta Alþingis, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, og mun funda með henni og fulltrúum þingflokkanna á þriðjudaginn.