Gengið hefur verið frá nýjum kjarasamningi fyrir landbúnaðarverkamenn. Menntun á háskólastigi verður metin til launahækkunar.
Starfsgreinasambandið og Framsýn stéttarfélag í Þingeyjarsýslum sömdu um kjör landbúnaðarverkamanna við Bændasamtök Íslands. Skrifað var undir nýjan samning hjá ríkissáttasemjara í dag.
Fram kemur á vef Framsýnar að samningurinn gildir til ársins 2014 og er að efni til í samræmi við aðra kjarasamninga sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði að undanförnu. Samningurinn felur í sér það nýmæli að menntun á háskólastigi á sviði búfræði, fiskeldisfræði og tamninga verður metin til launahækkunar.