Illugi Gunnarsson segist munu snúa aftur á þing í kjölfar álits lögmannsstofunnar Lex þar sem niðurstaðan er sú að ekkert hafi verið athugavert við fjárfestingarheimildir, fjárfestingarstefnu og eignasamsetningu Sjóðs 9.
Sigurður Kári Kristjánsson tók sæti Illuga á þingi þegar hann fór í leyfi frá þingmennsku í kjölfar rannsóknar sérstaks saksóknara á málefnum Sjóðs 9.