Neytendastofa hefur sektað sjö sérvöruverslanir í Reykjanesbæ í kjölfar könnunar á ástandi verðmerkinga í bænum. Verslununum var gefinn kostur á að koma verðmerkingum sínum í lag en þar sem þær fóru ekki að tilmælum Neytendastofu hefur stofnunin lagt á hverja þeirra stjórnvaldssektir að fjárhæð 50.000 kr.
Verðmerkingum söluvara í verslunarrými Art-hússins og Nýja Bakarísins voru ekki í lagi. Í verslununum HH Skóm, Kóda, K-Sport, Útivist og Sport og Voila voru óverðmerktar vörur í sýningarglugga, segir í úrskurði Neytendastofu.