Veiðibann einn valkosta

Rjúpur norpandi í rólegheitum í Árbænum.
Rjúpur norpandi í rólegheitum í Árbænum. mbl.is/Brynjar Gauti

Að mati Náttúrufræðistofnunar eru þrír kostir í stöðunni varðandi veiðistjórnun á rjúpu í haust. Einn þeirra er að hætta rjúpnaveiðum „þar sem sterkar vísbendingar eru um að rjúpnaveiðar á Íslandi séu í eðli sínu ósjálfbærar og auki afföll langt umfram það sem skotið er,“ eins og segir í mati Náttúrufræðistofnunar, NÍ, á veiðiþoli rjúpu.

Fyrsti kosturinn í upptalningu stofnunarinnar er að halda áfram veiðum á sama máta og verið hefur síðustu fjögur árin, það er að veiða í alls í 18 daga. Miðað við að rjúpnaveiðimenn verði fimm þúsund og að ásættanlegur afli sé um 31 þúsund fuglar þá eru tilmælin skýr; „hinn góði og grandvari veiðimaður veiðir að hámarki sex fugla,“ segir í mati NÍ.

Annar kosturinn er að takmarka veiðisókn enn frekar í þeirri von að til séu mörk þar sem truflun vegna veiða hættir að magna viðbótarafföll rjúpunnar. Veiðibannið er síðan þriðja í röð valkosta Náttúrufræðistofnunar.

Í umfjöllun um rjúpuna í Morgunblaðinu í dag kemur farm, að í skýrslu Náttúrufræðistofnunar segi að rjúpnastofninn sé í niðursveiflu um land allt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert