Skatttekjur sveitarfélaga lækkuðu nokkuð í fyrra miðað við árið á undan. Tekjuhalli sveitarfélaga var um 13 milljarðar kr.
Stefnt er að afgreiðslu frumvarps til nýrra sveitarstjórnarlaga á þinginu sem nú stendur yfir, þ.á m. um þá reglu að heildarskuldir sveitarfélaga séu ekki meiri en 150% af reglulegum tekjum.
Í umfjöllun um mál þessi í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að um 20 sveitarfélög séu skuldsett meira en því nemur. Sem dæmi var skuldahlutfall Hafnarfjarðar 198,4%, Mosfellsbæjar 161,3%, Kópavogs 177,1% og Reykjanesbæjar 360,8% í lok seinasta árs.