Hálkublettir eru á Fjarðarheiði og Möðrudalsöræfum. Krapi er á Hellisheiði eystri, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Færð á hálendisvegum er sumstaðar farin að spillast, t.a.m. er Sprengisandur norðan Nýjadals orðinn þungfær og Öskjuleið og Dyngjufjallaleið ófærar.