Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um tímabundna friðun vegna rannsókna á hrygningarsvæði steinbíts á Látragrunni.
Frá og með 15. september 2011, til og með 15. nóvember 2011 verða allar veiðar bannaðar á rannsóknarsvæðinu. Rannsóknarsvæðið sem nú er lokað tímabundið er við hlið friðunarsvæðis sem verður lokað 15. september.
Hafrannsóknastofnunin mun standa fyrir rannsóknarleiðangri til að rannsaka hrygningarsvæði steinbíts. Meðal þess sem fyrirhugað er að skoða er að meta þéttleika hrognaklasa steinbíts á Látragrunni sem metinn er með neðansjávarmyndavél.
Rannsóknir sýna að hrygning steinbíts hefst seinnihluta septembermánaðar en eggjaklasarnir eru botnlægir og því berskjaldaðir fyrir botnvörpuveiðum. Stór hluti fyrirhugaðs rannsóknarsvæðis verður fyrir utan friðunarsvæði steinbíts og því opið fyrir veiðum áður en rannsóknin fer fram. Þannig væri ekki unnt að meta þéttleika eggjaklasa steinbíts á því svæði án lokunar þess, samkvæmt fréttatilkynningu.