Samkomulag um lok haustþings strandar á því að forsætisráðherra heldur fast við að koma stjórnarráðsfrumvarpinu í gegn, þrátt fyrir mikla andstöðu í þinginu.
Þetta segir Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokks framsóknarmanna.
Þreifingar á milli þingflokksformanna stjórnar og stjórnarandstöðu báru engan árangur í gær en samkvæmt starfsáætlun þingsins er gert ráð fyrir að haustþingi ljúki á morgun.