Ráðherra sendir hamingjuóskir

Kynningarmyndband Inspired by Iceland vakti athygli.
Kynningarmyndband Inspired by Iceland vakti athygli.

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, óskar öllum aðstandendum Inspired by Iceland átaksins til hamingju með gullverðlaun og Grand Prix-verðlaun í samkeppni um evrópsku Effie-verðlaunin.

Íslandsstofa og Íslenska auglýsingastofan tóku á móti verðlaununum í Brussel í
gær fyrir árangursríkustu auglýsingaherferð ársins 2010 og áhrifamestu notkun á
samfélagsmiðlum. Breska almanntengsla- og auglýsingastofan Brooklyn Brothers,
sem var samstarfsaðili í verkefninu, var valin besta auglýsingastofa Evrópu
fyrir þátt sinn í Inspired by Iceland.

„Þetta er mikil viðurkenning til fjölmargra samstarfsaðila, sem áttu hlut að Inspired
by Iceland, til iðnaðarráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, Icelandair, Iceland
Express og yfir 90 fyrirtækja og markaðsstofa í ferðaþjónustu sem tóku þátt í
því. Einnig á auglýsingastofan Fíton sérstakar þakkir skildar fyrir vinsælt myndband
og mörg önnur miðlunarfyrirtæki fyrir framúrskarandi fagmennsku.

Þá vil ég færa almenningi á Íslandi sérstakar þakkir fyrir sinn virka þátt í átakinu.
Niðurstaðan er ekki eingöngu sú að það tókst með eftirminnilegum hætti að
bjarga ferðasumrinu 2010 eftir truflun á flugsamgöngum í kjölfar gossins í
Eyjafjallajökli.  Átakið hefur einnig átt
stóran þátt í gríðarlegri fjölgun ferðamanna á árinu 2011 – Íslandsmetið verður
örugglega slegið! Við munum síðan byggja á grunni Inspired by Iceland þegar við
hefjum nýja markaðssókn sem beinist að því að fjölga ferðamönnum utan hins
hefðbundna sumartíma," segir í skilaboðum frá Katrínu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert