Vinningshafinn sem vann fimmtíu milljónir króna í Víkingalottói í gærkvöldi hefur enn ekki gefið sig fram við Íslenska getspá. Var vinningsmiðinn keyptur á fimmtíu krónur í söluturninum Jolla í Hafnarfirði í gær. Miðinn gildir í ár svo hinn heppni hefur enn nægan tíma til þess að koma fram.