Skammast sín fyrir að vera þingmaður

Margrét Tryggvadóttir alþingismaður.
Margrét Tryggvadóttir alþingismaður. frikki

Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segist „skammast sín fyrir að tilheyra hópi alþingismanna“. Ástæðan sé það tilgangslausa karp sem fram fari í þingsal Alþingis. Þingmenn sói tíma sínum í stað þess að taka á þeim brýnu viðfangsefnum sem þjóðin þarfnist úrlausnar á.

Margrét tók sterkt til orða.

„Við þurfum að taka höndum saman og hætta þessu bulli... Það er svo mikið í húfi. Við getum ekki leyft okkur að haga okkur svona,“ sagði Margrét í þinginu fyrir stundu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert