Frestað vegna fundahalda

Þingfundi var frestað á Alþingi í morgun vegna fundahalda í Alþingishúsinu. Þetta kemur fram í svari þingfundasviðs Alþingis. Var þingfundi frestað frá 10:30 til 11:30 í morgun.

Hart hefur verið tekist á um stjórnarráðsfrumvarpið svokallaða á þingi síðustu daga og hafa stjórnarliðar reynt að semja við stjórnarandstöðuna um lyktir málsins.

Vel á fimmta tug mála bíða afgreiðslu þingsins í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert