Mörgum varð hált á bleytunni

Starfsmaður Árekstur.is skráir árekstur. Myndin er úr safni.
Starfsmaður Árekstur.is skráir árekstur. Myndin er úr safni.

Mörgum ökumönnum varð hált á bleytunni á höfuðborgarsvæðinu í gær og í dag. Starfsmenn Áreksturs hafa aðstoðað ökumenn við útfyllingu á tjónablöðum í meira en  50 árekstrum sem orðið hafa á höfuðborgarsvæðinu.

„Í mörgum þessara árekstra má rekja orsökina til rigningar og bleytu á götum borgarinnar. Ökumenn virðast misreikna hemlunarvegalengdina þegar götur eru blautar, meira en helmingur þessara árekstra er vegna aftanákeyrslu.

Í morgun urðu tveir harðir árekstrar, annars vegar á gatnamótum Nökkvavogs og Snekkjuvogs og hins vegar á gatnamótum Viðarhöfða og Stórhöfða.  Flytja þurfti bifreiðar á brott með kranabifreiðum frá Krók eftir báða árekstrana,“ segir í tilkynningu frá Árekstri.
 
„Um þrjúleytið í dag varð síðan harður árekstur tveggja fólksbifreiða á gatnamótum Listabrautar og Kringlumýrarbrautar. Flytja þurfti báðar bifreiðar á brott með kranabifreiðum.
 
Seinni partinn í dag varð árekstur milli strætisvagns og fólksbifreiðar á Miklubraut, tveir farþegar strætisvagnsins meiddust lítillega í árekstrinum.
 
Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Vesturlandsvegi við Álafosskvos og ók utan í vegrið. Bifreiðin var óökufær eftir óhappið.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert