Nóttin var með rólegasta móti að sögn varðstjóra lögreglu höfuðborgarsvæðisins í morgun. Einungis þrír gistu fangageymslur lögreglunnar sem er með minnsta móti. Dælubílar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru ekki kallaðir út í nótt.
Sjúkraflutningamenn fóru hins vegar í um þrjátíu sjúkraflutninga í nótt.