Truflanir eru á afgreiðslu metans á bensínstöð N1 á Bíldshöfða. Orsökin er rafmagnstruflun sem varð um helgina í gasstöð Sorpu í Álfsnesi en unnið er að því að koma þjónustunni í samt lag samkvæmt upplýsingum frá Sorpu.
Á tímabili í gær voru aðeins afgreiddir bílar sem eingöngu ganga fyrir metani vegna truflananna.