Ökumaður á tíræðisaldri velti bíl sínum við Dragháls í Svínadal í dag. Missti hann stjórn á bílnum á malarvegi með þeim afleiðingum að hann valt. Slasaðist hann þó ekki í óhappinu.
Þá var ökumaður tekinn í dag grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna rétt utan við Borgarnes. Reyndist hann einnig aka án ökuréttinda.