Margt var um manninn og hesta í Laufskálarétt í Skagafirði í dag en þær eru stærstu stóðréttir Íslands. Afar gott veður var í Skagafirði í dag og gengu réttarstörf fljótt og vel fyrir sig.
Laufskálaréttarball verður síðan í kvöld í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki en þar mun hljómsveitin Von leika fyrir dansi og fá aðstoð landsþekktra söngvara, svo sem Sigríði Beinteinsdóttur, Magna Ásgeirssonar, Jogvans Hansens og Matthíasar Matthíassonar.