Selur á steini í Eyjafirði

mynd/Harpa Jónsdóttir

Þessi selur var í heimsókn á Akureyri í gær, sat hinn rólegasti á steini skammt frá Leiruveginum og virti fyrir sér umferðina og mannlífið.

Kobbi lét það ekkert á sig fá þótt fólk virti hann fyrir sér og tæki myndir og virtist raunar gangast upp í fyrirsætustörfunum og sýndi á sér ýmsar hliðar.

Að sögn kunnugra er ekki óalgengt að selir sjáist á Pollinum og þeir munu stundum fá sér snæðing í Eyjafjarðaránni, veiðimönnum til lítillar ánægju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert