Vegna sjávarfalla er nauðsynlegt að breyta áætlun ferjunnar Baldurs milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar næstu daga.
Þriðjudaginn 27. september verða ferðir Baldurs frá Vestmannaeyjum kl. 17.30 og frá Landeyjahöfn kl. 19.00 felldar niður.
Miðvikudaginn 28. september og fimmtudaginn 29. september verður ferð Baldurs frá Vestmannaeyjum kl. 17.30 færð til kl. 14.30 og ferð Baldurs frá Landeyjahöfn kl. 19.00 færð til kl. 16.00.