Ekki rétt að hafna Heilögum papa

Bjór frá Ölvisholti.
Bjór frá Ölvisholti.

Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu, að ákvæði reglna ÁTVR um að merkingar á umbúðum megi ekki brjóta í bága við almennt velsæmi með skírskotun til trúarbragða, hafi ekki lagastoð.

Umboðsmaður komst að þessari niðurstöðu eftir að hafa fjallað um kvörtun frá lögmanni brugghússons Ölvisholts, sem ætlaði að setja á markað bjór undir nafninu Heilagur papi. ÁTVR hafnaði umsókn um að selja bjórinn þar sem vörumerki og heiti bjórsins voru talin brjóta í bága við almennt velsæmi með skírskotun til trúarbragða. Fjármálaráðuneytið staðfesti þessa ákvörðun. 

Umboðsmaður taldi að reglur ÁTVR hefðu ekki næga lagastoð. Þá taldi hann að úrskurður fjármálaráðuneytisins hefði ekki fullnægt kröfum stjórnsýslulaga um efni rökstuðnings.

Niðurstaða umboðsmanns

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert