Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir stjórnvöld vera að íhuga aðgerðir sem koma til móts við lögreglumenn vegna óánægju þeirra með gerðardóm.
Hún segir þó ekki mögulegt að grípa inn í gerðardóminn og segir stjórnvöld vera að íhuga aðrar aðgerðir en beinar launahækkanir og nefnir öryggismál lögreglumanna í þeim efnum.