Stjórn Landssambands lögreglumanna er nú á fundi með fulltrúum lögreglufélaga um allt land og óháðum lögmönnum þar sem fjallað er um stöðu mála í kjölfar niðurstöðu gerðardóms um kjör lögreglumanna.
Lögreglumenn á Selfossi tilkynntu nú um hádegið að þeir hefðu ákveðið að segja sig úr mannfjöldastjórnunarhópi embættisins. Væri það gert vegna kjaralegrar stöðu og niðurstöðu gerðardóms
Um er að ræða níu lögreglumenn og varamenn þeirra. Segjast þeir með þessu vilja andmæla niðurstöðu gerðardóms og mótmæla sinnuleysi stjórnvalda í garð lögreglumanna á Íslandi.
Áður höfðu lögreglumenn á Suðurnesjum, í Eyjafirði, á Akranesi og í Borgarnesi sagt sig úr óeirðasveit lögreglunnar í mótmælaskyni við niðurstöður gerðardóms um launakjör lögreglumanna.