Garðsapótek við Sogaveg var oftast með lægsta verðið á lausasölulyfjum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í apótekum landsins mánudaginn 26. september. Árbæjarapótek við Hraunbæ var oftast með hæsta verðið í könnuninni. Verðmunur á lausasölulyfjum var frá 23% upp í 93%, en í flestum tilvikum var munur á hæsta og lægsta verði 30-60%.
Kannað var verð á 36 algengum lausasölulyfjum, sem eru seld án lyfseðils. Farið var í apótek víðsvegar á landinu en Ólafsvíkurapótek neitaði þátttöku í könnuninni. Lægsta verðið var oftast að finna hjá Garðsapóteki Sogavegi eða í 20 tilvikum af 36. Hæsta verðið var oftast hjá Árbæjarapóteki við Hraunbæ sem reyndist dýrast í 13 tilvikum af 36.
Mesti verðmunurinn í könnuninni að þessu sinni var á verkjalyfinu Panodil (500 mg. 30 stk.) var það dýrast á 654 krónur hjá Austurbæjarapóteki í Ögurhvarfi og ódýrast á 339 krónur hjá Apótekinu á Akureyri, sem er 315 krónur verðmunur eða 93%. Forðatöflurnar Duroferon (100 mg 100 stk.) voru dýrastar á 931 króna hjá Lyfjum og heilsu í Reykjanesbæ en ódýrastar á 490 krónur hjá Garðsapóteki Sogavegi sem er 90% verðmunur. Rennie-töflur fyrir bakflæði (96 stk. í pakka) voru dýrastar á 2.332 krónur hjá Lyfjum og heilsu en ódýrastar á 1.289 krónur hjá Garðsapóteki sem er 81% verðmunur.
Af öðrum algengum lausasölulyfjum má nefna að nikótínlyfið Nicorette fruitmint í 210 stk. pakkningu var dýrast á 5.415 krónur hjá Lyfjum og heilsu í Reykjanesbæ og ódýrast á 4.390 krónur hjá Lyfjaborg í Borgartúni sem er 1.025 króna verðmunur eða 23%. Frunsukremið Vectavir var dýrast á 1.802 krónur hjá Árbæjarapóteki við Hraunbæ og ódýrast á 1.240 krónur hjá Garðsapóteki Sogavegi sem var 45% verðmunur.