Lögreglumenn funduðu í kvöld

Fundur lögreglumanna var fjölmennur.
Fundur lögreglumanna var fjölmennur. mbl.is/Golli

Lögreglumenn komu saman til fundar í kvöld til að ræða stöðuna í kjaramálum sínum, en mikil óánægja er í þeirra hópi með úrskurð gerðardóms. Fundurinn var fjölmennur.

Fyrr í dag kom vinnuhópur sem skipaður er samninganefnd lögreglumanna og fulltrúa frá forsætis-, fjármála- og innanríkisráðuneytinu saman til að ræða kröfur lögreglumanna. Engar ákvarðanir voru teknar en lögreglumenn segja að fundurinn hafi verið gagnlegur.

Lögreglumenn hafa rætt hvernig þeir geti best komið óánægju sinni með kjör sín á framfæri við stjórnvöld. Þeir hafa hins vegar ekki verkfallsrétt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert