Hrina uppsagna hefur riðið yfir í þessum mánuði, en vel á annað hundrað starfsmenn hjá fimm fyrirtækjum hafa misst vinnuna, eða um 180 talsins, sem greint hefur verið frá opinberlega.
Í umfjöllun um atvinnumálin í Morgunblaðinu í dag segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, að vænta megi frekari uppsagna á næstu dögum.