Fimm voru teknir fyrir ölvun við akstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þeirra á meðal voru tvær konur og ók önnur þeirra utan í bifreið í Miðhúsum í Grafarvogi.
Engin slys urðu á fólki vegna ölvunarakstursins. Að öðru leyti var lítið um útköll hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.