Mikill hiti var á Austurvelli í dag við þingsetningarathöfn. Þúsundir manna voru komir saman til að mótmæla og þingmenn voru grýttir þegar þeir gengu úr Alþingishúsi yfir í Dómkirkjuna þar sem flutt var guðsþjónusta.
Forsetafrúin Dorrit Moussaieff vakti þó mikla lukku þegar hún kleif yfir girðingu lögreglunnar og talaði við mótmælendur.