Geta tekið út lífeyrissparnað

Heimild til að taka út séreignasparnað hefur verið framlengd.
Heimild til að taka út séreignasparnað hefur verið framlengd. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Lög sem heimila launafólki að taka út lífeyrissparnað tóku gildi í dag. Úttektarheimildin  var aukin úr 5.000.000 kr. í 6.250.000 kr. Heimild til aukinnar úttektar tekur gildi 1. október n.k. og er úttektartímabilið allt að 15 mánuðir. Sækja þarf um úttekt samkvæmt heimild þessari fyrir 1. júlí 2012.

Eftir hrun var opnað á heimild til að taka út séreignarsparnað og hefur þessi heimild verið framlengd nokkrum sinnum. Greiða þarf skatt af úttektinni og fá bæði ríkissjóður og sveitarfélögin umtalsverðar skatttekjur vegna þessa. Áætlað er að skatttekjur ríkissjóðs vegna þessa nemi 2 milljörðum á næsta ári.

Á vef Lífeyrissjóðs verslunarmanna er fjallað um þessa heimild. Heimilt er að greiða út til sjóðfélaga allt að 6.250.000 kr. á 15 mánuðum eða 416.677 kr. á mánuði fyrir skatt. Útgreiðslutíminn styttist hlutfallslega ef um lægri fjárhæð en 6.250.000 kr. er að ræða.

Fyrsta útgreiðsla skv. nýrri heimild verður 31. október 2011 ef umsókn hefur borist sjóðnum fyrir 20. október.

Inneignin sem hægt er að taka út miðast við stöðuna 1. október 2011, þó aldrei hærri upphæð en 6.250.000 kr.

Sérstök heimild til úttektar séreignarsparnaðar nær ekki til greiðslna sem berast í sjóðinn eftir 1. október 2011.

Greiðslur sem greiddar hafa verið samkvæmt eldri heimildum dragast frá heildarfjárhæð sem heimilt er að greiða út.

Þeir sem þegar hafa sótt um útgreiðslu séreignarsparnaðar samkvæmt eldri heimild og vilja gera breytingar í samræmi við nýja heimild þurfa að sækja um breytt greiðslufyrirkomulag með nýrri umsókn.

Eingöngu er hægt að taka út hjá einum vörsluaðila í einu. Greiddur er tekjuskattur af fjárhæðinni. Það er á ábyrgð sjóðfélaga að upplýsa sjóðinn um í hvaða skattþrepi skattgreiðsla á að vera.

Útgreiðslur séreignarsparnaðar skulu hefjast eigi síðar en einum mánuði eftir að fullnægjandi umsókn berst vörsluaðila og greiðast mánaðarlega.

Vörsluaðilar, svo sem Lífeyrissjóður verzlunarmanna, þurfa samþykki ríkisskattstjóra áður en útgreiðsla getur hafist.

Heimild til úttektar gildir til 1. júlí 2012 þ.e. síðasti dagur til þess að sækja um útgreiðslu er 30. júní 2012. Síðasti útgreiðslumánuður skv. heimildinni er september 2013. Sjóðfélagi getur afturkallað beiðni um útborgun á útgreiðslutímabilinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert