Flóðið náði upp í brúargólf

Svona leit Svaðbælisá út í dag.
Svona leit Svaðbælisá út í dag. Ljósmynd/Ólafur Eggertsson

Starfsmenn Suðurverks hafa í dag unnið að því að dýpka farveg Svaðbælisár undir Eyjafjöllum, en mikið vatn er í ánni og nær vatnsborðið alveg upp að brúargólfi. Að sögn Ólafs Eggertssonar, bónda á Þorvaldseyri, hefur ekki flætt yfir hringveginn en það hefur mátt litlu muna.

Mikið hefur rignt á Suðurlandi síðustu sólarhringa. Svaðbælisá ber ennþá mikla ösku sem féll í Eyjafjallagosinu niður eftir ánni. Ólafur segir að áin hafi líka étið úr varnargörðum og borið efnið niður að brúnni þar sem er tiltölulega flatt.

Svaðbælisá flæddi yfir bakka sína í fyrra og segir Ólafur greinilegt að menn verði að vera áfram á varðbergi til að tryggja að ekki verði tjón á samgöngumannvirkjum.

Það eru starfsmenn Suðurverks sem hafa í dag unnið að því að dýpka farveg Svaðbælisár.

Starfsmenn Suðurverks vinna við Svaðbælisá.
Starfsmenn Suðurverks vinna við Svaðbælisá. Ljósmynd/Ólafur Eggertsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert