Djákna- og prestvígsla fór fram í Skálholtsdómkirkju í dag. Tveir djáknar voru vígðir, Ásta Ágústsdóttir til Kársnesprestakalls og Rut G. Magnúsdóttir til Vinaleiðar í Lágafellsskóla í Mosfellsprestakalli. Ninna Sif Svavarsdóttir var vígð til prests Selfossprestakalls.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup annaðist vígsluna. Þetta er fyrsta djákna- og prestvígsla hans en hann tók við embætti vígslubiskups í Skálholtsbiskupsdæmi 18. september sl.