Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld, að forsætisráðherra gæti skapað traust í samfélaginu með því að láta gamlan draum sinn rætast og afnema verðtryggingu hér á landi.
Sagði Birgitta að þeir landsmenn, sem hefðu sýnt mesta ráðdeild fyrir hrun hefði ekki fengið neina leiðréttingu á sínum skuldamálum.
Birgitta sagði, að 21. öldin væri öld almennings.