Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefndar, segir að þær aðgerðir sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpi næsta árs hafi reynst vel. Skattahækkanir og niðurskurður hafi náð að rétta ríkissjóð við þó töluvert sé í land. Ekki hafa verið gerðir útreikningar þar sem áhrif á lán almennings eru skoðuð.