Kona var færð í fangageymslu lögreglunnar eftir mótmælin við Alþingi í gærkvöldi. Ók hún að lögreglumönnum þar sem þeir voru að taka niður girðingu í Kirkjustræti og flautaði á þá. Þegar hún gaf sig á tal við þá kom í ljós að hún var undir áhrifum fíkniefna og gerði sér enga grein fyrir að mennirnir sem hún taldi trufla akstursleið sína væru lögreglumenn.