Mótmælin koma ekki á óvart

„Mótmælin koma ekkert sérstaklega á óvart. Við sem störfum á Alþingi erum mjög meðvituð um þá óánægju sem er úti í samfélaginu“, segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins eftir umræður á þingi í kvöld.

Hann segir svar Sjálfstæðisflokksins við þessari óánægju vera að leggja fram ítarlegar tillögur um hvernig hægt sé að snúa þjóðarbúinu til að skapa megi störf og auka hagvöxt í landinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert