Tvær erlendar konur veltu bifreið sinni í Búrfellshrauni rétt vestan við Mývatn um klukkan hálf sex seinnipartinn. Voru þær á bílaleigubíl, lentu í snjóslabbi og lentu utan vegar.
Hvoruga konuna sakaði, að sögn lögreglunnar á Húsavík, en bifreiðin er illa farin ef ekki ónýt. Þær voru fluttar af lögreglu á gistihús og fá nýjan bílaleigubíl í fyrramálið og munu þá halda áfram för sinni.