Stúdentaráð Háskóla Íslands lýsir yfir undrun og skilningsleysi á því að enn og aftur skeri yfirvöld niður fjárframlög til Háskóla Íslands.
Í ályktun sem SHÍ hefur sent frá sér kemur fram að þrátt fyrir fullan skilning á því að fjármagn ríkissjóðs sé af skornum skammti þá veltir ráðið fyrir sér hvers konar samfélag yfirvöld vilji byggja hér upp.
„Við erum þegar með eitt fjársveltasta háskólakerfi Evrópu sem sést skýrt í nýlegri skýrslu frá OECD. Það að byggja upp háskóla eftir niðurskurð kostar mun meira en sem nemur sparnaði við að skera niður, svo ekki sé minnst á samfélagslegan skaða.
Þegar má á sjá – fyrir hvern kennara á félagsvísindasviði Háskólans eru 55 nemendur. Sama tala fyrir sambærilega skóla á norðurlöndunum er í kringum 10. Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands kennir og útskrifar lækna, hjúkrunarfræðinga og aðra starfsmenn heilbrigðisgeirans sem fara beint frá skólanum til vinnu á íslenskum spítölum og sjúkrastofnunum. Háskólinn er ábyrgur fyrir því að tryggja gæði menntunar þessa fólks og með sífellt minna fjármagni verður sífellt erfiðara að veita þessa tryggingu.
Háskóli Íslands hefur á undanförnum árum unnið þrekvirki. Þrátt fyrir mjög takmarkað fjármagn hefur skólinn náð tiltölulega langt og sett markið hátt. En velgengni getur ekki viðhaldist endalaust á metnaði og vilja einum saman. Starfsfólk og stúdentar munu að lokum leita annað ef ekki fást viðunandi aðstæður í heimalandinu.
Jörðin er flöt – af hverju að læra á Íslandi? Af hverju að velja Háskóla Íslands?
Þegar leigumál eru í ólestri, samgöngur erfiðar og dýrar, verðlag almennt á uppleið, samfélag í sárum og ofan á það bætist sífellt minni áhersla stjórnvalda á háskólamenntun, hvers vegna ætti ungt fólk ekki að velja önnur samfélög til að þroskast, dafna og nema?
Samfélagslegur hagnaður af háskólamenntun ungs fólks er margfalt meiri en þeir fjármunir sem varið er til menntunar. Því má í raun segja að hver króna sem varið er til háskólans skilar sér margfalt til baka.
Enginn vill niðurskurð og fáir taka honum þegjandi. En þetta snýst ekki um að stela stærri bita af lítilli köku. Þetta snýst um að sýna ungu íslensku fólki að það sé raunverulegur vilji til að skapa því tækifæri í heimalandinu. Framfarir fást ekki nema með menntun. Við höfum allt sem til þarf til að byggja upp framúrskarandi háskólakerfi sem getur keppt við bestu skóla heimsins.
Ef við viljum íslenskt menntasamfélag með tilheyrandi framförum, frumkvöðlastarfi og nýsköpun þá þarf að setja háskólamenntun í forgang. Það er ósk og ákall ungs fólks í landinu.
Stöndum vörð um Háskóla Íslands," segir í ályktun frá SHÍ.