Ósáttar við ákvörðun þingflokksins

Siv Friðleifsdóttir.
Siv Friðleifsdóttir. mynd/Johannes Jansson/norden.org

Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna, LFK, harmar þá ákvörðun þingflokks Framsóknarflokksins að draga Siv Friðleifsdóttur út úr forsætisnefnd Alþingis. Þetta kemur fram í ályktun frá sambandinu.

„Siv er reynslumesti þingmaður Framsóknarflokksins sem nú situr á Alþingi. Hún hefur sýnt það með störfum sínum að hún er starfinu vaxin. Hefð er fyrir því að ekki sé hróflað við kjörnum forsetum á miðju kjörtímabili."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert