Seltjarnarnes hafði betur í viðureigninni við Reykjavík í Útsvari í kvöld. Seltjarnarnes fékk 77 stig en Reykjavík fékk 65 stig. Svo skemmtilega vill til að lið Seltjarnarness var skipað systkinum og til þess að gera söguna enn betri var bróðir þeirra símavinurinn.
Í liði Seltjarnarness voru: Anna Kristín, Rebekka og Þorbjörn Jónsbörn og Sigurður bróðir þeirra var símavinur liðsins.