Víkingur AK kom til Vopnafjarðar í morgun með fyrsta loðnufarminn á vertíðinni, tæp 1.000 tonn. Þetta er stór og góð loðna eða um 42 stk. í kg. Loðnan fékkst í grænlensku lögsögunni norður af Horni. Um 250 sjómílna sigling var til Vopnafjarðar.
Ingunn er að landa 500 tonnum af síld en Lundey og Faxi eru á landleið undan brælu. Í gær var verið að skipa út 1.600 tonn af frosnu en nú er verið að skipa út 1.500 tonnum af lýsi.
Síldarvertíðinni er að ljúka og tekur þá við loðnuvertíð í beinu framhaldi en hér á Vopnafirði hefur verið stanslaus vinna frá því um miðjan júní og er unnið á vöktum allan sólarhringinn.