Karlmaður á fimmtugsaldri er alvarlega slasaður eftir bílveltu við Deildará, rétt sunnan við Raufarhöfn. Verið er að flytja hann með sjúkraflugi frá Þórshafnarflugvelli til Reykjavíkur.
Slysið átti sér stað kl. 8.50 í morgun. Lögreglumenn komust ekki umsvifalaust á slysstað þar sem senda þurfti menn frá Húsavík. „Fyrr á þessu ári var lögreglustöðinni á Raufarhöfn lokað vegna niðurskurðar og sparnaðar. Það er auðsjáanlega að koma sér illa í þessu tilfelli,“ sagði lögreglumaður sem rætt var við.