Sameiginlegt tilboð ÍAV hf. og Marti Contractors Lts. frá Sviss í gerð Vaðlaheiðarganga var lægst en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Tilboð þeirra hljóðaði upp á ríflega 8,8 milljarða króna eða um 95 prósent af kostnaðaráætlun.
Önnur tilboð voru á bilinu 9,5 milljarðar upp í 10,8 frá íslenska samstarfshópnum Norðurverki, frá Ístaki hf. og frá sameiginlegu boði Metrostav a.s. og Suðurverki hf., að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.
Fram kemur að áætlaður verktakakostnaður hafi verið 9.323.350.000.
Tilboðin voru:
IAV/Marti (Ísland - Joint Venture) 8.853.134.474,- 95,0 %
Norðurverk (Ísland - samstarfshópur) 9.488.706.534,- 101,8 %
Ístak hf. (Ísland) 9.901.752.795,- 106,2 %
Metrostav-Suðurverk (Ísland - Joint Venture) 10.849.427.276,- 116,4 %